Árný !

pretty pink

31.10.2006 22:58:41 / Árný

I ' m bringin sexy Back ! YEAH

mér er svo kalt a tánum að þær detta bráðum af! Það er samt miklu betra að vera kalt á tánnum en puttunum, en ekkert er verra en að vera kalt á tásunum og puttunum!

Til að vera týbísk ætla ég að rita smááááá um mig; smá update HEHE stelpur skilja (omg!! hehe) eða strákar skiljiði því það lesa þetta gegg margir hommar skiljiði heheh omg!!

Djók.

Hef fengið á mig slæmt orðspor nýverið fyrir að vera alvarleg gelgja. Hef fengið punkta eins og ,,systir þín sem er 13 er ekki gelgja í samanburði við þig" og ,,Þetta er komið gott" og ,,Þetta áttiru að taka út í 9.bekk"....

Það er eins og Newton sagði; Líkamlegi þroskinn á ekkert skylt með þeim andlega, og þá held ég svei mér þá að 4. lögmálið hafi fengið uppreins æru.

---

Um helgina, um helgina var ekki gert ýkja mikið eins og the priest said. Ég lærði ekkert, stundaði vinnu og fór í bíó og fór á brjálað staffadjamm sem fór úr böndunum í hina á áttina (horfðum á video með pepsi, popp og Nachos öll hálf sofandi í staðinn fyrir frían bjór, frí skot og trylltan dans upp á borðum að ógleymdu staffakynsvalli)

Ég og Dagmar fórum á Mýrina á laugardagskvöldið, sem betur fer hafði Dagmar verið of sniðug og keypt miðana fyrr um daginn, enda fengum við miða, annað en sumir sem fóru á Mjallhvít og dvergarnir hálfu í staðinn.
Dagmar, sem orðuð hefur verið við jarðýtur á sínum handboltaferli gaf EKKERT eftir og hrinnti öllum gömlu kjellingunum og labbaði yfir alla með staf til að ná bestu sætunum í bíósalnum! Min Fraur und Herr, Dagmar Sigurðardóttir náði bestu sætunum, fyrir miðju í svona 5 röð ofan frá talið. Eini o reyndar mjööög stór ókostur við sætin(fyrir utan ljóta fólkið sem sat við hliðina á okkur gullfallegu englunum) var KÓKIÐ sem hafði hellst niður fyrir neðan labbirnar okkar. Við festumst við gólfið og þvílíkt klístur hefur ekki sést síðan ég festist í jarðaberjasultunni á cafe parís fyrir stuttu!

Eftir bíóið skutlaði Dagmar mér niður í bæ (ég bað hana vinsamlegast um að eiga sér líf og drullast til að koma með mér aðeins að skemmta sér, en nei, þó auljóslega hana hafi langað mjög mjög mikið þá sagði hún nei nei nei og þar með fékk titilinn beilari ársins) og þar hitti ég Arnaud Fulla og Georg sexy (sem ég húkkaði saman á gay ballinu fyrr í október) og saman fórum við í eitthvað Sjálfstæðispartý til Gulla manns Ágústu Johnson, sem vann 2. sætið á listanum, Gulli s.s.
Ég lét alla þarna inni vita að ég væri ekki flokksbundin sjálfstæðisflokknum og þá var mér hent út (djók) hehe, nei fór bara heim, vegna vinnu snemma sunnudags.

Jæja, ætla ekki að rekja helgina upp, né fara ofaní sauma hennar (ORÐAGRÍN), en eitt ógeðslega fyndið af lokum!

Ég var að vinna með í sumar nýbúa sem var kokkur sem heitir MU og er frá kína. Hann var voða dúlla og augljóslega mjg skotinn í mer og ég hafði meira segja áhyggjur á tímabili að hann hafi hætt með kærustunni sinni (virkilega næs kínastelpu) útaf mér.
Síðan hættir hann því hann var að fara byrja í MH og síðan kemur hann á laugardaginn á cafe parís og ég spyr hann hvernig sé í MH og hann er bara kaldur og spyr um númerið mitt. Ég vildi nákvæmlega ekkert gefa honum það en þar sem ég er ekki fjandsamlega týpan þá ákvað ég að gefa honum það þótt samband okkar hafi einungis skorðast við vinnuna.
Allavega hann sendir mér SMS áðan, HEY ARNY THIS IS MU, HOW ARE YOU?
ég sendi til baka, hey mu, i am fine, how is MH?
Þá sendir hann: FINE, WHOULD YOU LIKE TO HANG OUT WITH ME?

Þessu ákvað ég ekki að svara og er að reyna koma upp með góða leið til að hafna honum, enda yrði það frekar vandræðalegt að hanga með Mu einhverstaðar að t.d. gef öndunum brauð og eitthvað.....

Mu er samt fínn strákur, of fínn...

allavega kveðja Árný


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.10.2006 01:05:25 / Árný

hæ aftur

Þar sem Erna lýsti yfir dauða og sulti á Tan-freaks og ég er alvarlega horny í að skrifa nokkur orð á netið þá ákvað ég að skella inn nokkrum línum, ef ekki fyrir dygga aðdáðendur mína, þá bara fyrir mig sjálfa.

Sit hér í sófanum og borða kalt spaghettí, er ekki frá því að ég hafi gleymt að loka ískápnum......

... Það er svo fyndið hvað sumur matur er góður kaldur en annar horrrrrrible.

Tökum til dæmis franskar. Þær eru geggjað góðar heitar en vá hvað þær verða mikill viðbjóður kaldar. Síðan er það ítalskur matur aftur á móti, spaghetti, lasanja, pizza.. mmmmm allt gott kalt,

já lífið er skrýtið lítið tré.

Pælingar stuttar í dag

aurivou

Frodo


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.08.2005 22:54:36 / Árný

HÆTTUR

færslan hér á undan er með öllu óskiljanleg svo ég ákvað að endurtaka  hana..................

......................Ég er hér með hætt, búin, í bili .......... ég er að blogga með Ernu Fernu á www.blog.central.is/tan-freaks ....................

Árný R(ÚT)


» 94 hafa sagt sína skoðun

31.08.2005 22:50:50 / Árný

hættur!

HÆjjjjjjjjjjjjjjjjjjj

Er hætt með þessa síðu í bili og hef snúið mér að www.blog.central.is/tan-freaks þar sem ég og Ernu Kýr munum skiptast á að blogga um daginn og veginn !!

Árný R (ÚT)


» 96 hafa sagt sína skoðun

12.08.2005 11:30:31 / Árný

pungsveitt svín hér!

nokkuð langt síðan ég bloggaði hérna síðast, kanski kominn tími á að ég sýni smá lit og fari að gera eitthvað gagn í bloggheiminum. -öllum- til mikillar ánæju ;)

en já, það er ekki ýkja mikið að gerast hérna hjá mér en það sem stendur sennilega upp úr er innflutningspartíið sem ég fór í um síðustu helgi. Til hamingju með íbúina Hildur og Svandís :D - ég og Erna keyptum flottustu gjöf í heimi, eða samlokugrill og stórt plaggart sem ´stóð á "take your best shot" og allar tegundir af vodka sem þú getur ýmindað þér (sko myndir af þeim). Þær urðu svo ánægðar að þær ætla að hengja það upp í stofunni og kaupa ramma utan um það :D .. Erna, gott að við keyptum ekki brauðkassann og glasamotturnar.... hehe

Jæja svo er maður bara að vinna endalaust á Nordica, alltaf mikið í gangi þar, eins og til dæmis starfsmannafundur. Minn fyrsti starfsmannafundur, það var stuð. Hafði reyndar ekkert erindi þangað en það var fróðlegt að fá smá innsýn í hótelreksturinn. :)

hmm, kanski maður tali aðeins illa um einkennisbúninginn minn! Mér líður eins og ég hafi sloppið út af klepp. Úff, enda er maður ógeðslega sexí. Ekki séns að hössla einhverja celeba, þeir myndu frekar falla fyrir ruslafötunum! Nei segji svona.. haha ha ha h a....

Núna er handboltinn eitthvað að reyna byrja. Það er ekki að ganga því það mæta aldrei fleiri en 5. Þá neitar þjálfarinn að hafa æfingu, hann vill hafa svo margar, a.m.k 10. Maður er búin að mæta 2 sinnum og í hvorugt skiptið er æfing!! bömmer dauðans því maður er alveg til í að fara drippla bolta aftur. Enda keypti maður sér bolta út í Svíþjóð (meðal annars, hehehehe, það minkaði aðeins í buddunni þá). En næsta æfing hjá ÍR-stelpunum verður á mánudaginn klukkann 21 í seljaskóla, eg vil sjá eins margar stelpur og hægt er!!! Ég vil halda áfram í handbolta, það væri ansi leiðilegt ða hætta í boltanum útaf því það er ekki hægt, því ég er ekki að fara spila í öðrum liðum, enda er maður ekki það mikill talent, hehe ;)

Hvað er annað nýtt. Já maður er búin að missa vinnuna í bónusvideo því nnýjir eigendur neita að hafa fólk undir 18 ára það. Mesta kjaftæði sem ég hef nokkur tíman heyrt. Gaurinn sem er búin að taka við þessu er 18 ára sjálfur og hefur ekkert starfsfólk!! Er fólk alvarlega heimskt, í fyrsta lagi kann hann ekkert á þessa sjoppu og hann á klárlega eftir að missa einhver viðskipti! en jæja maður getur enn unnið á nordica...

ER í vaktafríi í dag og það er ljúft, átti líka að eiga frí í gær, en neinei var ekki hringt í kjelluna og hún beðin um að mæta auka... iss, svona ewr maður eftirsóttur. haha en glætan að ég vinni einhverntíman aftur yfirvinnu, því ég er með ´fáránlega lág yfirvinnulaun!!!!!!!!!! - til skammar.

en það næsta á dagskrá hjá mér er að fara í MS, láta busa sig og fara læra eins og sveitt svín, skemmta sér rækilega og væntanlegahalda áfram ´´i handbolta? but who knows?

já síðan er ég að fra á námskeið "hvernig á að taka á móti VIP's" dinner og læti, hlakka mest til. Ég, Hjördís og allar tælensku vinkonur mínar ætlum að skjella okkur, enda ekki á hverjum degi sem maður fær að skella sé í betri gallann og skemmta sér á námskeiðum!

læt þetta nægja og minni á nýtt ,, nú hef ég séð allt " og ,, bögg dagsins "

Árný 8)

ps: Þórey ef þú ert brúnni en ég þá er ég búin að tapa :( - svekkjandi fyrir mig


» 113 hafa sagt sína skoðun

01.08.2005 14:58:28 / Árný

stutt

 hinir einlægu lesendur síðunnar, halló..

Jáá, um helgina var ekki gert, uuuuuuuuuuuu, NEITT!

Hékk reynar aðeins með Ernu, Dagmar, Albert og Krissa... fórum singstar og draugaleik, mjög gaman ! ! Síðan fórum við Hinrik í keilu í gær og ég rústaði honum, ég með 49 stig og hann 36 !! - síðan vann hann mig í þythokkí.

höfum þetta stutt, lofa betra bloggi næst, bæbæ


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.07.2005 12:20:45 / Árný

possso

Jæja, þá er kjellinginn til í slaginn og ætlar að henda einu kvikindi bloggi á veraldarvefinn...

Yebbs ég er í fríi og það má segja að það sé ekki notað til svefns, hehe. Ef það er eitthvað sem ég kann ekki þá er þaða ð sofa út! ég er vöknuð fyrir níu, hvað er það?

En já þegar maður kemst svona snemma á fætur þá er óhætt að segja að morguninn sé notað'ur til hins ýtrasta í eitthvað nytsamlegt eins og Sims...

Í gær fór ég 2 í sund og í 1 stk. bíó og ég komst að því að það er sársaukafullt að reyna vera gella. Ég keypti mér geeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeðveika skó í mango í svíþjóð og ætlaði að nota þá í gær... eigum við að segja að ég hafi labbað á sokkunum frá salarlaug í bíó!? Ég vissi ekki að blöðrur væru svona fljótar að spretta fram, en maður ég var haltrandi. En í ég fór lika í sund með Dagmar og hún er svo brún, ohh. Ég er ekkert brún! Og ég hef komist að því líka að ég verð blábrún, svona dauðabrún, brún eins og fólk sem er dáið, fæ á mig lík lit! ég er skárri hvít.....

Um næstu helgi ætla ég ekkert, enda er ég að vinna en ég væri alveg til í að kíkja eitthvað út á sunnudagskvöldið, ætlar einhver að joina, hehe?

takk og bless, og góða skemmtun hvar sem þið verðið um verslunnarmanahelgina!


» 87 hafa sagt sína skoðun

13.07.2005 19:05:59 / Árný

drop it like it's hot

Hellú I'm back from Sweden!

Ef ykkur lystir í að vita það þá var MJÖÖG gaman í Svíþjóð og það kom ekki ein sekúnda í ferðinni sem mér leiddist.

Við fórm í Vants, - og skemmtigarð, Skara Summerland og það var magnað, maður var eins og krakki í sælgætisbúð, enda var úrvalið af rennibrautum og tækjum endalaust. Skemmtilegast var þá gúmmíhringirnir og klessubílarnir, hehe :P

Síðan fórum við í stóra tívolíið Liseberg og Þórey og Sjöfn drógu mig í öll stóru tækin og ég beilaði ekki á neinu, ekkert smá gaman, fór í fallturn og skot turn og stærsta rússíbanan Bald ( er ) ur :P - mjög gaman :P

Þá er komið að aukaatriðinu.. handboltanum ;) - neinei, okkur gekk ágætlega, unnum 3, töpuðum 3 og gerðum 1 jafntefli. - Komust í A úrslit, eina ÍR liðið! - stolt af því ;)

En já það var klárlega verslað og maður missti sig kanski ögn en það er í lagi, það voru allsstaðar útsölur! meeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeen.

en já nenni ekki að blogga meira.. bæbæ


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.06.2005 23:10:27 / Árný

klikk fjör

margblessssaðn daginn..

sit hér ein og sauma, er að passa og allt er að rifna úr stemmingu..

Datt eitt GEÐVEIKT sniðugt í hug og það er að hafa liðinn ,, Nú hef ég séð allt " inn á síðunni. Hann virkar þannig að ef ég sé eitthvað sem ég hef aldrei séð áður og finnst það merkilegt kemst það á ,, Nú hef ég séð allt " listann minn...

Listinn mun verða uppfærður, bara þegar mér dettur í hug, ekkert vikulegt eða daglegt.. en hann mun birtast á hægri spassíu síðunnar í svokölluðu textaboxi.

Ok síðan datt mér líka að vera með svona lið ,, Mesta bögg dagsins " - en í honum mun felast það mest pirrandi líðandi stundar. Það mun birtast á hægri spássíunni einnig, fyrir neðan ,, Nú hef ég séð allt " ...

Annars er allt gott að frétta af mér.  Fer til Sweden bráðum og hef ákveðið að hætta við að hössla svíana með ,, snygge röve " því að einn sænskur hommi sem ég hitti segir að það sé ekki smart að segja það. Þ:annig Kúlið helst áfram eitthvað fram yfir Svíþjóð.. En má samt ekki segja Húbbaalíúba?

.... Mig er farið að dreyma langar verslunarferðir í IKEA og H&M... 6 DagAr, vængefið stutt.. mamma er eitthvað tæp á tauginni  yfir því að ég sé ekki farin að pakka ennþá, en eins og maðurinn (konan) ,, Þetta reddast"

+A planinu hjá mér er semsagt að setja inn nýja skoðunarkönnunn... en ég hef alvarlega takmarkað hugmyndaflug svo..

kveð, ykkar ástlæg, Árný Jónsson


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.06.2005 00:07:27 / Árný

freak bingó freak

Heeeeeeeeeellú, nenni ekki að fara sofa, og ákvaða ð blogga.

hmm.. margt hefur drifið á dagana síðan þannn 17. eins og í dag hitti ég aftur Gleðisveit Ingólfsgaurinn sem ég hitti á 17... sem ég var sennilega ekki b´æuin að blogga um, en málið er að ég og erna erum að labba þann 17. upp að nonnabita og sé ég ekki kall sem ég kannast við og bara hey ert þú ekki gaurinn í Gleðisveit ingólfs. og hann bara jú og við f´rum eitthvaða ð spjalla.. ernu fannst þetta mjög asnalegt og labbaði í burtu, skammaðist sín eitthvað fyrir mig, ohh hún er svo kúl.

e já í gær þá fór ég í starfsmannapartí eftir vinnu til Hildar bjargar og það var ekkert smá gaman að sjá Gugga sleggju (yfirmaðurinnþ9 taka lagið í singstar. Hann var eins og frank sinatra að syngja skater boy með avril lavinge.. HEHE.

Hildur ósk og Guðný skutluðu mæér heim  um  3 leytið, enda ég búin að lofa að koma heim þá og fór bara að sofa sátt. en í dag þá fór ég að láta minnka nýju gleraugun, hver gæti trúað því að  svona tröll eins og ég sé með álfa haus. En núna smell passagleraugun, sem ég er by the way algjör gella með, og ég er sátt.

bið að heilsa öllum smáum og litlaum (ernu() og hér er einn einahúmors brandari hana ernu en allir fatta hann sennilega..

" pældu í því að heita Olsen og vera pila Olsen Olsen" - hehe við vorum að tala um svía og homma.

- síðan verður að fá að fljóta með eitt mesta gull sem þórey hefur sennt frá sér..

Vorum á æfingu og allt í einu heldur þórey um klobbann sinn og segir "Árný mig vantar vaselínþ" - hehe en þá var hún með nuddsár útaf stuttbuxunum....

Árný


» 112 hafa sagt sína skoðun

20.06.2005 21:35:38 / Árný

Sjúkulaðe

jiii, þið ættuð að sjá mig núna, ég er gleraugnalaus og bókstaflega límd við skjáinn! hehe (ég fékk mér fegurðarblund og gleymdi gleraugunum niðri, eigum við að segja að letin sé að drepa mig, hehe) Jæja, nún vilja flestir heyra af undanförnum dögum, Am I right or what??? - Auðvitað verð ég að öllum óskum! - óskum þessara 3 sem lesa síðuna! Á fimmtudaginn var ég að vinna aukavakt í vinnunni YEAH og familian (fyrir utan mig, - er ekki tekin með sem fullgildur memeber, membercardið er týnt) fór norður yfir heiðar í heimsókn til ömmu og afa. Föstudagurinn var vel nýttur í svefn og til hátíðarfagnaaðar. Ég & Erna kíktum í bæinn, gáfum öndunum brauð, keyptum blöðrur og fengum okkur í ís í FRÁBÆRU veðri í miðbænum! - um kvöldið kíktum við svo aftur, verð að segja að það hafi verið algjört flopp, fullt af fullu fólki og þá aðalega unglingum. Sumir misstu sig aðeins of mikið í gleðinni.. aðrir voru samt skemmtilegir ;-) Það voru óhressar píur (Erna and I) sem leigðu sér bara spólur í staðinn fyrir að hanga í bænum um 12 leytið. Við horðum á Detroid Rock city og fórum svo bara að sofa.. Enda var mín að fara vinna.... VinnaVinna Vinna alla helgina = pening pening = ekkert félagslíf = ? Sótti um skóla og varð MS fyrir valinu, og ef ég kemst ekki inn þar (sem ég tel ólíklegt að gerist ekki) þá fær FB að njóta mín :$ en verð að hætta núna, mamma er farin að æpa þau kunnulegu orð "ekki sitja svona nálægt sjónvarpinu/tölvunni, þau fara illa með augun á þér" enda er ég 2 cm frá.. Krrææst

» 88 hafa sagt sína skoðun

07.06.2005 17:48:00 / Árný

útskrift

Í gær þá útskrifaðist ég úr Breiðholtsskóla! – hef verið þar í 10 ár og núna er það bara búið, allt í einu. Skrýtin tilfinning, en samt góð. Ég hlakka til að byrja í nýjum skóla næsta vetur, en hef ekki hugmynd hver ég ætla, hef ekki einu sinni ákveðið áfanga vs. Bekkjarkerfi.En nóg um það kvöldið í gær hóft inn í sal. Sigþór, nýji skólastjórinn talaði mjög fallega um okkur, sagði að við hefðum gott orðspor á okkur og við mættum ekki glata því. Þannig að krakkar stay in school svo Sigþór verði ekki leiður! Hvað um það.. Ég var látin halda ræðu og verð ég að segja að það tókst nokkuð vel, þ.e. ég var ekkert mikið stressuð. – Ég og Lísa fengum viðurkenningu fyrir góð störf í þágu nemenda, mjög gaman að vera viðurkenndur í einhverju hehe. En Síðan var Skákbikarinn (#$%&#$%$#%#) afhentur og ég þurft að labba upp á svið og taka á mæoti honum, ég hef ekki roðnað svona mikið lengi!! – since ever held ég. En hlægjiði bara mér er alveg sama, þið hafið sennilega aldrei verið Skákdrottningar! Allir voru rosalega væmnir og ég held ég eigi eftir að sakna flestra þarna. Svolítið erfitt að hætta alt í einu að sjá andlit sem maður hefur haft dagleg samskipti við í mörg ár! En hvað með það þá vil ég óska öllum til hamingju með útskriftina og gangi ykkur vel í framhaldinu, - sama hvað þið takið ykkur fyrir hendur!

 

 



Ræðan sem ég flutti í gær,- læt hana flakka með til gamans..

 

 



 

 



Góða kvöldið, eða ætti ég frekar að segja gleðilegt kvöld?

 

 



Þegar ég spurði um hvað þessi ræða ætti að fjalla þá var mér sagt að tala um einhvern minnistæðan atburð sem gerst hefur á skólagöngu minni hér við Breiðholtsskóla.

          Ég fór þá að hugsa og það fyrsta sem kom upp í hugann á mér var þegar Anna Sigga, núverandi aðstoðarskólastjóri, kom í 2. bekk inn í kennslustund og sagði við okkur grafalvarleg að það bæri á því að krakkar væru að skemma tréin sem eru umhverfis skólann. Í framhaldi að því bað hún okkur að gerast verndarar tjánna. Það má segja með sanni að við tókum þetta hlutverk með trompi, en þetta ár er frægt fyrir skort á plástrum og sárabindum. Enn þann dag í dag er þessi stutta ræða Önnu greipuð inn í huga mér og í hver skipti sem ég sé einhverja krakkagríslinga skemma eða klifra í trjám snýr trjáverndarinn Árný aftur til starfa.

          Annar minnistæður atburður úr daglegu skólalífi er þegar ég var í heimilisfræði. Ég man sérstaklega vel eftir því að við vorum að baka vöfflur. Hópurinn minn var mjög spenntur fyrir þessu og til þess að ég sæi allt sem væri að gerast þá lá ég fram á eldavélinni. Allt í einu fann ég að mér var orðið heitt á maganum og ég man ennþá hvað blasti við mér. Stórt gat á svuntunni og á nýju ÍR peysunni minni. Ég vissi ekki hvert Lilja heimilisfræði kennari ætlaði, en henni fannst þetta ekkert smá sniðugt og segir öllum krökkunum sem hún kennir frá þessu atviki. Það veit ég vegna þess að eitt skipti þegar litla systir mín kom heim úr heilisfræði fór hún að segja okkur frá stelpu sem brenndi gat á svuntuna sína...

 

 



          Þessa dagana er ég mjög oft spurð að því í hvaða skóla ég ætla eftir grunnskólann. Þá svara ég, mjög pirruð, að ég viti það ekki. Ég hélt að það væri óákveðni en þá var mér bent á að þetta væri einfaldlega hræðsla við að yfirgefa Breiðholtsskóla. Auðvitað, þarna kom það. Ég er hrædd við breytingar, enda líður manni ótrúlega vel í þessu umhverfi sem Breiðholtsskóli er. Frábærir kennarar, góð aðstaða, sem er alltaf að batna og björt framtíð, að mín viti hefur hún aldrei verið bjartari.

 

 



Núna verð ég að hætta vera hrædd og snúa mér að framtíð minni. Þess vegna segi ég Bless Breiðholtsskóli, Halló framtíðin. Takk fyrir öll árin saman.


» 110 hafa sagt sína skoðun

04.06.2005 00:12:44 / Árný

fyrigefðu

Jæja, þá er þessari vinnutörn lokið og önnur alveg eins á morgunn *yess* að vinna í 14 og hálfan tíma er uppáhaldið mitt, elska það! - svona er það að hafa vinnu maður getur ekki talað um neitt annað enda á maður sér ekkert líf.

Gerðist alltof dugleg í gær og skellti mér í ræktina, gleymdi mér aðeins á hlaupabrettinu því the apprentis eða eitthvað var í sjónvarpinu, maður var vel sveittur eftir það. Þóttist síðan eitthvað ætla að fara að lyfta, en neinei, ég fórinn í tækjasalinn, stóð á miðjugólfi og gapti. Ekki 1 tæki af svona 20 sem ég gat hugsanlega notað, hafði aldrei séð svona áður. Er farin að halda að Eastberg sé með eitthvað fornt dót.

Hann Einar Freiðrik (er það ekki skrifað svona því´hann á heima í þýksalandi núna?) er bestur í heimi. Vonandi lestu þetta, - hvernig ættiru annars að vita að mér þætti big red tyggjó best í heimi? - Takk kærlega fyrir :) Þetta toppar allt!

hmm..núna er maður á algjörum bömmer yfir að þurfa að skipta um skóla og ég veit ekkert hvað ég á að gera. Ég vill fara í Versló, MH, MS, FB og Kvennó, - hef ekki einu sinni ákveðið hvort ég ætla í bekkjar eða áfanga kerfi. Er þetta ekki alveg týbíkst ég. Það má ekki láta mig velja milli sokka án þess að ég fari í kefri og þurfi að sleppa því að fá sokka.

Bara einn mánuður í svíþjóð, még hlakkar vængefið mikið til! IKEA, svenske fyr og snygge röver.. Abba og sjubidie..lala og shoopeer, en það þýðir handborgari á sænsku

Ég fór jómfrúarferð mína með grænakortinu í gær, það eer ekkert smá gaman að eiga þannig, bráðum f´ég bílpró og þá þarf ég það ekki lengur, þá verður vonandi allur glans farin af grænakortinu...

en nó í bíli


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.06.2005 12:13:34 / Árný

pirringurinn er að drepa suma

Dagurinn í gær  var mjög fínn. Ég vaknaði snemma og kláraði vinnubók í líffræði og fann allar bækurnar sem ég skuldaði á bókasafninu. Fór síðan í skólann og talaði við 7. bekk um lokaballið. Iðunn kennari (held ég???) stoppaði mig af og spurði hjá hvaða kennara ég hefði verið hjá í fyrstu bekkjum, held hún hafi blaðrað í korter, ég hef aldrei talað við þessa konu áður :S - hún kannast greinilega ekki við -égnenniekkiaðtalaviðþig- svipinn.
Fór inn í sal að hlusta á einhvern mjög leiðinlegan fyrirlestur frá konu um rauða krossinn og hjálparstarf. Eftir það var mér skipað upp á svið að ræða málin (athyglissýki?)... hehe... ég?

Dagmar kom mep mér heim og ég grillaði hamborgar handa okkur. Mottóið mitt er: KEMUR! - þeir voru ekki upp á 10 hehe.. pínu þurrir og brauðin voru skrautleg, segjum 2 - 3 litir. Við fórum síðan í Mjóddina að taka strætó. En því miður höfðum við nýmisst af 16 svo við ákvaðum að taka 18. - ekki besta hugmynd sem við höfum fengið, þurftum að hoppa yfir læk og klöngrast niður einhverja hræðilega brekku, - en við komumst samt í Smáralind á undan 16 svo markmiðinu var náð! - Spara 2 mínútur. Sparasparaspara.

Voum frekar lengi í lindinni því ég er svo lengi í búðum, greyjið Dagmar kemur ekki með mér í búðir í langan tíma.. Fengum far með mömmu heim sem var hress, henni finnst við fastar í fortíðinni (með fortíðarþrá) því okkur finnast gleðibankinn, eitt lag enn og aðrir góðir smellir skemmtilegir. Síðan var Danska eurovision lagið blastað í Opelnum (station) og ég tók eftir mörgum forvitnum augum á leið okkar heim því það er ekki algengt að sjá húsmóður að nálgast fertugsaldurinn syngja eins og brjálæðingur í bílnum. Sem betur fer hittum við ekki á Ásgeir Kolbeins, hann hefði tekið okkur í bakaríið fyrir að vera ekki með rétta hnakka lúkkið.

Síðan var það bara ballið, Lokaballið. Það var mjög gaman. Ég byrjaði á því að spila einhverjar gamlar lummur, því skrifarinn skrifaði ekki CD-inn sem ég mixaði fyrir kvöldið, Æjæj. - en hvað með það þá ætla ég ekki að leggja þetta fyrir mig :P .. nema kanski ég myndi Dj-ast á NASA, - BÓ og aðra heiðursmenn.

Svitabandið stóð einning fyrir sínu, voru mjög góðir, en mér fannst þeir samt betri í fyrra, ég er sennilega bara orðin of gömul í svona böll, en hef mikið til að hlakka til á næsta ári. Framhaldsskólinn, það verður fróðlegt, hef heyrt of margar góðar sögur ;) Við fengum rós (eins og reyndar allir 10 bekkir, allir) en það er sérstök ánægja í því. Mín stendur núna á stofuborðinu, frekar skökk og deyr senniæega bráðum. Ég hef aldrei verið sérlega lagin við blóm. - nema við garðyrkju. En það er frekar mjög leiðilegt svo læt það vera.

En held að niðrustaðan og staðreyndin sé sú: Síðasta ballið í Breiðholtsskóla. Æj á maður ekki eftir að sakna allra kennarana og krakkanna? Fyrir samræmdu hefði ég alveg verið til í að sjá þetta lið aldrei aftur en núna er maður farin að efast um það.. Hildur Sigurðar?? Maggi?? Anna Fanney?? Kristján?? Jafnvel Bára á skrifstofunni!! - hehe.

Nóg af væmni og ógeði, gleðilegt sumar.


» 4 hafa sagt sína skoðun

31.05.2005 00:10:57 / Árný

poppari

hellú, það liggur svo illa vel á mér núna að að ég ákvað að skella inn einu bloggi.. - eitt sinn bloggari ávallt bloggariloggi inn, skella einu bloggari, ávallt bloggari.

Í dag fór í í vinnuna, var nærrum því búin að misssa af strætó, strætóinn pakkaður og hurðinn skelltist í mig! - Ég hélt að það yrði leitað á mér þegar ég kom loksins í vinnuna, því Indlandsforseti gistir á Nordica og öryggisgæslan er mjög ströng.

Á leiðinni heim þá kom ég við á kamarnum ("félagsmiðstöð" breiðholtsskóla sem heitir víst bakkasel núna því það er frístundarheimili) og hitti hann Jóa góðvin minn.. Það var hresst. Síða kíkti ég í heimsókn til hans Hinriks/Hákons og hann sagði mér frá því að í vinnunni í dag þá hefði hann sópað bílastæði sem var mjög stórt - spennó.

hmmm.. fór í ræktina og hitti þar Sunnu og Ásdísi í Fylki. Þær voru hressar að vanda og hlökkuðu mjö mikið til þess að fara til Svíþjóðar. æuæuæu bara 34 dagar í þetta.. - Guðný sem er vinna með mér í Bónusvideo var síðan að segja mér að hún er líka að fara til Sweden!!! HAHA sem aðstðarþjálfari en fyndið, heimurinn er minni en allt! - Sem minnir mig á eina sögu. Á laugardaginn var ég að afgreiða kall og hann var perri (kemur sögunni ekkert við). Ég er að fara slá inn kennitöluna hans og hann segir 1101.. ég varð mjög uppnema með mér og sagði að ég ætti líka afmæli þá (þá sagði hann í símann. sem hann talaði í allan tímann, haha hérna er verðandi konan mín).. Síðan sá ég Arne Karl (Kalla) og fyrir fróða menn þá vita þeir að hann á afmæli líka 11. janúar.. ´Guðný var voða mikið ein í heiminum því við vorum bara 4 inn í sjoppunni!

Í kvöld þá fórum við staffið í bíó. Á house of Wax. Eigum við eitthvað að ræða það. Greinilegt hver valdi myndina!! - Allavega ég var öskrandi ala myndina og ég vorkenni Kristínu (pegasusi) mikið! - Ég verð aðal aðhlátursefnið næstu dagana. Það er ástæða fyrir þvíu að ég horfi ekki á myndir bannaðar innan 16!!!!!!!!!!!!!

hmmmm.. já hey er í fríi á morgun og ætli maður kíki ekki í skólann og farai að ,,læra" eitthvað.. rauði krossinn kemur víst og heldur einhvern fyrirlestur. Við vitum nú öll að ég nenni ekki að hlusta það, sérstaklega útaf því að ég var nærrum því búin að missa tyggjóið ofan í æfingadúkkuna seinast þegar ég var að æfa skyndihjálp. - ég hugsa að ég sleppi bara fyrirlestrinum og fari að bögga kKristján eða Magga. EÐA HRELLA / BEKKINGA úúúú. Það er bannað að busa í Breiðholtsskóla, munið það krakkar! - ég man hvað ég var alltaf hrædd við að vera busi.. alveg síðan í 4. bekk ojj. Enda býr/bjó maður í mesta villinga hverfi í heiminum.

Núna er ég að rífdast við krissa um hvort paris hilton sé gella eða ekki. ég er með en hann á móti. ég er líka að bíða eftir að mamma sé búin í stóru tölvunni svo ég geti brennt disk fyrir ballið á morgun. KRÆST mér hlakkar svo til :D

hmmm.. já ég held samt að það hafi toppað daginn áðan þegar ég var að fara útúr bílnum og rekið framtennurnar í bílhurðina - kristín og kærastinn hennar voru mjög asnaleg á svipinn svona eins og þau vildu fara hlæja!! ohh, alltaf jafn heppin..

Að lokum.. Bjöggi þú ert pulsa


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10